Paradísarmissir?

Þann 16. apríl næstkomandi standa Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Ferðafélag Íslands, Ferðafélagið Útivist, Ferðaklúbburinn 4×4, Framtíðarlandið og SAMÚT fyrir hálendishátíð í Háskólabíói.Háskólabíó. 16.apríl II  Á hátíðinni verður vakin athygli á fyrirhuguðum framkvæmdum á hálendi Íslands og mikilvægi þess að vernda hálendið.

Hátíðin hefst klukkan 20:00 og verður haldin, eins og áður sagði í Háskólabíói en á dagskrá eru meðal annars ræður í styttri kantinum, tónlistar- og skemmtiatriði en meðal listamanna sem koma fram eru Andri Snær og AmabadAma.  Frítt verður inn á hátíðina og allir eru velkomnir.

Hægt er að kynna sér hátíðina nánar á viðburði hátíðarinnar á Facebook.

Lesendur Fimmvörðuháls.is eru hvattir til þess að kynna sér kröfu Landverndar og fleiri samtaka á vefsíðunni Hjarta Landsins en á vefsíðunni er einnig hægt að skrifa rafrænt undir stuðningsyfirlýsingu við kröfur félaganna og leggja lóð sitt á vogarskálar til verndar hálendi Íslands.

 

Auglýsing fyrir Paradísarmissi?

All rights reserved - Theme from Accesspress Copyright: Guðmundur Örn Sverrisson - Fimmvorduhals.is