Frá og með vorinu 2015 verður boðið uppá gistingu í Baldvinsskála og skálavarsla verður yfir
![Baldvinsskáli](https://i1.wp.com/www.fimmvorduhals.is/wp-content/uploads/2013/11/11072823_10153195708075421_518017354_n.jpg?resize=300%2C225)
sumartímann. Hingað til hefur eingöngu verið boðið uppá gistinu í Fimmvörðuskála en hann rúmar eingöngu 20 næturgesti og gistiplássin því af takmörkuðu magni á Fimmvörðuhálsi. Frá því Baldvinsskáli var tekinn í notkun haustið 2012 bar mikið á slæmri umgengni um skálann og því er ljóst að hið nýja fyrirkomulag mun bæði auka þjónustu við ferðafólk með auknu framboði gistirýma og vörslu skálans.
Gisting á Fimmvörðuhálsi býður uppá að skipta gönguleiðinni í tvær dagleiðir sem getur verið skemmtilegur kostur fyrir þá sem nýta vilja ferðina s.s. til myndatöku og gefur raunar fleirum kost á að ganga þessa fallegu gönguleið þar sem mörgum þykir ganga yfir Fimmvörðuháls á einum degi heldur strembin.