Langidalur

Í Langadal í Þórsmörk byggði Ferðafélag Íslands Skagfjörðsskála árið 1954 og fagnaði því sextugsafmæli sumarið 2014.  Skálinn var vígður þann 21. ágúst sama ár.

Aðstaða í Langadal er mjög góð, tjaldsvæðið nær vel inn dalinn og margar fallegar lautir sem hægt er að tjalda í.

Í Skagfjörðsskála er svefnpláss fyrir 75 manns í gistingu.  Salernis- og sturtuaðstaða er í sér húsi rétt við skálann.

Nánari upplýsingar um aðstöðu Ferðafélagsins í Langadal má nálgast á vefsíðu FÍ.

Hæð:

GPS-hnit:

All rights reserved - Theme from Accesspress Copyright: Guðmundur Örn Sverrisson - Fimmvorduhals.is