Skógafoss á Plan Iceland

Plan Iceland

Á ferðavef Já.is, Plan Iceland, er hægt að skoða 360° myndir af Skógafossi.  Fossinn er sá síðasti og syðsti í hreint magnaðri fossaröð Skógaárinnar sem rennur niður Skógaheiðina en gengið er með henni fyrsta hluta leiðinnar frá Skógum yfir í Þórsmörk.  Hægt er að skoða fossinn frá þremur sjónarhornum með því að smella á örvarnar á myndunum og færa þannig til sjónarhornið.  Á hverjum stað fyrir sig er svo hægt að skoða myndir allan hringinn.

Mikið væri gaman að geta séð almennilega upp á Skógaheiðina – jafnvel lengra!

Smelltu hér til að skoða myndirnar!

Skógafoss
Skógafoss
All rights reserved - Theme from Accesspress Copyright: Guðmundur Örn Sverrisson - Fimmvorduhals.is