Fyrsta Jónsmessuganga Útivistar yfir Fimmvörðuháls

Útivist-Jónsmessa

 

Við Skógafoss - Jónsmessa 1994Fyrsta skipulagða ferðin í ferðaáætlun Útivistar var farin fyrir tæpum tuttugu árum eða  24. -25. júní 1994.  Hugmyndin að slíkri ferð hafði verið að gerjast í nokkur ár en með endurbyggingu skála Fjallamanna á Fimmvörðuhálsi árin 1990-1991 jukust ferðir til muna yfir hálsinn og þekking og kunnátta fararstjóra á svæðinu þar með.  Undirrituð fór í sína fyrstu næturgöngu yfir Fimmvörðuháls í júli 1990 og var tilgangur þeirra

Gengið upp Skógaheiðina - Jónsmessa 1994r ferðar að kveðja gamla skála Fjallamanna sem var svo rifinn nokkrum vikum síðar og bygging nýja skálans hófst.  Við vorum fjórir félagar í þessari ferð og hrepptum þoku og sudda megnið af leiðinni sem m.a. varð til þess að við töpuðum áttum í smástund á Morinsheiðinni.  Sumarið á eftir skipulagði Útivist næturgöngu með hóp frá Einari J. Skúlasyni sem tókst afar vel og sú hugmynd að setja slíka ferð í ferðaáætlunina skaut fastari rótum.

Alls tóku þátt 28 farþegar í JónsmeÍ gamla skála Fjallamanna 21 júlí 1990ssunæturgöngunni í júní 1994 tóku og fararstjórar voru þeir Árni Jóhannsson og Páll Ólafsson.  Þótti þetta alveg dágóður hópur en á þeim tíma var ekki algengt að fjöldi göngumanna væri mikið yfir tuttugu í ferðum yfir hálsinn.  Föstudagskvöldrúta í Bása fór með gönguhópinn að Skógum og hófst gangan um kl. 23 í fallegu og kyrru veðri.  Gengið var upp með Skógánni hefðbundna leið og tekið gott stopp við Fimmvörðuskála eftir tæpa fimm klst. langa göngu.  Áfram var haldið norður yfir hálsinn en á þeim tíma var nægur snjór og unnt að fara niður brekkuna norðan við skálann.  Sólin var komin hátt á loft og var hitinn slíkur að göngumenn voru sumir hverjir komnir á stuttbuxur á jVið Heljarkamb - Jónsmessa 24 júní 1994öklinum.  Við Heljarkamb var aftur áð og nú skálað í freyðivíni fyrir velheppnaðri göngu.  Básar tóku vel á móti göngufólki með gróðurilmi og blómaskrúð, tíu tímum eftir að ferðalagið hófst við Skógafoss.  Framhaldið þekkja margir, næsta ár voru þátttakendur um 100 talsins og þegar best lét voru á fjórða hundrað farþegar í Jónsmessunæturnæturgöngu Útivistar. Umferð um Fimmvörðuháls var ekki mikil fyrir tuttugu árum, ég man ekki til þess að við hefðum hitt nokkurn mann á leiðinni, en nú er sagan önnur.

– Ása Ögmundsdóttir

All rights reserved - Theme from Accesspress Copyright: Guðmundur Örn Sverrisson - Fimmvorduhals.is