Skálum lokað

Nú er almennu göngutímabili yfir Fimmvörðuháls lokið og skálum hefur verið lokað.  Síðasti skálavörður í Fimmvörðuskála Útivistar kom til byggða 31. ágúst sl. en þeir sem erindi eiga á Fimmvörðuháls og vilja nota aðstöðu ferðafélaganna á Fimmvörðuhálsi er bent á að hafa samband við Ferðafélag Íslands vegna Baldvinsskála eða Útivist vegna Fimmvörðuskála.

Segja má að ferðasumarið hafi gengið stór-áfallalaust fyrir sig þó vissulega hafi eitt og annað gengið á.  Upphaf sumars einkenndist af miklum snjóþunga og setti það strik í reikning margra þeirra sem áætlað höfðu að leggja á Hálsinn.  Fegurðin í snjónum sveik þó engan sem á annað borð treysti sér í gönguna eins og myndir sem við fengum sendar sýndu vel.

 

May 14, 2016 @ 10:35 am
All rights reserved - Theme from Accesspress Copyright: Guðmundur Örn Sverrisson - Fimmvorduhals.is